Ég horfði í fyrsta skipti á ævi minni á heilan fótboltaleik í gær nokkuð stolt bara. Ég held samt að ég leggi ekkert í það aftur í bráð þetta er nóg í bili. Hefði samt viljað að Ísland hefði unnið.
Ég hef nú ekki mikið tískuvit og klæðist yfirleitt þeim flíkum sem mér finnst fallegar og reyni að láta þær passa sem best saman. Mér finnst t.d. skór skipta miklu máli og það er með því fyrsta sem ég tek eftir þega ég horfi á fólk. Fyrir mér eru skór punkturinn yfir i-ið þegar heildar lúkkið er skoðað. Allavega til er fólk sem pælir ekkert í lúkki skónna heldur aðeins þægindunum, ég tek það fram að ég geri það líka ef um vinnu er að ræða eða eitthvað þannig en ekki þegar kemur af bíó, verslunarferð, djammi eða þannig hlutum, þetta fólk klæðist m.a. crocs skóm þið vitið klossunum úr plastinu eða hvaða efni þetta nú er í öllum regnbogans litum með fullt af loft götum og oftar en ekki með einhverjum fígúra spennum á. En svona til að bæta gráu ofan á svart fyrir mér og eflaust setur punktinn yfir i-ið hjá öðrum þá hafa crocs menn ákveðið að gera veski í stíl! NO COMMENT!!!
Hér er ég með mynd af gripnum.
En svona er fólk með misjafnan smekk sem betur fer því annars væru allir eins og það væri nú ekki gaman af því
Mér finnst crocs skórnir reyndar mjög hentugir inniskór fyrir börn þæginlegir og sætir svona bleikir með prinsessu spennum, bláir með bílaspennum á eða hvernig litur sem er með hvernig spennum sem er.
Ég held að þvottavéla-þurkkarinn okkar éti sokka, það hlýtur bara að vera. Ég get enga ástæðu fundið fyrir því afhverju það kemur oftar en ekki sokkur úr vél sem á sér engan samstæðan! Undarlegt mál
Við áttum tíma í mæðraskoðun númer 2 á morgun en það verður auðvitað ekkert af þeim tíma sökum verkfalls. Afhverju er ekki hægt að borga ljósunum það sem þær eiga skilið!! Þær fara ekki af sínum kröfum enda engin ástæða til þess og hví þá að vera að draga þetta! Ljósan okkar hringir á mánudaginn og finnur annan tíma fyrir okkur vonandi sem fyrst. Er farin að hlakka til að heyra í litla hjartanu
Jæja ég er farin að gera eitthvað að viti, Kristjana.